ÍMARK
Íslenski markaðsdagurinn var í og þar sem ég er ekki kominn í elítuna þá fór ég ekki á hann en þar sem ég er áhugasamur nemandi í markaðsrannsóknum þá var mér "boðið" á verðlaunaafhendingu ÍMARK. Þegar ég kom í háskólabíó tilbúinn með boðskortið mitt þá var bara enginn til að taka við því og það virtist ekkert þurfa boðskort á þessi verðlaun. Annars var mjög gaman að sjá fólkið úr bransanum, markaðsfólk eins og það kallar sig sturta í sig bjór og mingla við hina spaðana. Síminn og EnnEmm fengu verðlaun fyrir hönnun á Símaverslununum ég tók það til mín einnig þar sem einungis voru sýndar myndir úr versluninni minni í kringlunni. Þar ég vann í sumar við að breyta henni í samræmi við mörkunarstefnu fyrirtækisins og nýtt útlit. Þess má geta að sem afleysingar lagerstjóri fékk ég listrænt frelsi til að raða vörum eins og ég taldi best.
Annars er auglýsinga markaðurinn merkilegur bransi.. þarna mætir makaðslögmálið listinni og býr til ansi merkilega blöndu.
Ég óska öðrum sigurvegurum lúðursins til hamingju.
25.2.05
8.12.02
Með fulla vasa af grjóti
Ég og Sigrún fórum í leikhús eftir prófið mitt í gær. Pabbi bauð okkur hann er nefnilega að verða 50 ára á þriðjudaginn. Við fórum að sjá með fulla vasa af grjóti með þeim Hilmi Snæ og Stefáni Karli. Þeir félagar eru algerir snillingar og fara á kostum. Ég mæli með þessu fyrir alla, létt og skemmtilegt verk. Þeir félagar bregða sér í öll hlutverk enda bara einir á sviðinu allan tíman. Hlimir er sérstaklega minnistæður sem steraöryggisvörður með útstætt rassgat sem gengur yfir sviðið og breytist svo í annann karakter sem gerir grín af steratöllinu.
Niðurstaða: Stefán karl er mjög góður------Hilmir Snær er og verður alltaf snillingur


26.11.02
24.11.02
Dont´s say a word
Ég hélt að þetta væri ekki góð mynd. En þegar ég loksins lét mig hafa það að sjá hana kom hún líka svona skemmtilega á óvart. Spennandi og Michael Douglas sem er ,,nota bene" ekki í uppáhaldi hjá mér var bara að gera ágætis hluti. En sú mynd sem hefur komið einna mest á óvart síðustu misserin er about a boy


18.11.02
Bergþór Leifsson á leit.is
Það eina sem ég fann þegar ég leitaði eftir nafninu mínu á leit.is var úrslit frá Andrésar Andar leikunum á skíðum síðan 1986. Þar stendur að ég hafi ekki mætt, ég man bara ekkert eftir að ég hafi misst af neinum andrésarleikum. Þetta er eitthvað sem ég verð að spyrja mömmu um.
Hver man eftir Konfekti
Það er ekki laust við að maður sakni þessarar hágæða íslensku menningar sem var á skjá einum

Strætó
Svo ég haldi áfram að tala um strætó þá rakst ég á það um daginn að eini staðurinn sem vinalínan er auglýst er í strætó. þar eru menn á ferð sem vita um markhóp sinn. Þar sem ég brunaði mjög einmana í leið 5 á milli Lækjartorgs og Hlemms og reyndi að forðast að hafa samband við hitt skrítna fólkið, datt mér í hug að hringja í vinalínuna og hefði líklega gert það hefði ég verið með einhverja inneign!!!
17.11.02
Veikur
Ég er búinn að vera veikur alla helgina og það er örugglega það leiðinlegasta ástand sem maður getur verið í. Það eina jákvæða við þetta er að maður getur hangið í tölvunni.
16.11.02
Guffi
ég sá að guffi gæðadrengur úr símanum kringlunni setti link á mig og ekkert nema gott um það að segja. Takk Guffi minn. Ég mun gera það sama fyrir þig einhvern daginn þegar ég er búinn að læra það.
Annað nokkuð merkilegt, ég náði að setja teljara á síðuna hennar Sigrúnar þannig að hún getur farið að taka þátt í þessu fyrir alvöru

